Frysta kort í appinu

Það er einfalt og fljótlegt að frysta kredit- og debetkort í appinu ef kort glatast.

Með því að frysta kortið lokar þú fyrir notkun kortsins í verslunum, hraðbönkum og á netinu:

  • Boðgreiðslur/áskriftir munu virka áfram
  • Kortagreiðslur með Apple Pay, Google Pay munu virka áfram
  • Snjallgreiðslur, svo sem greiðslur í gegnum Fitbit og Garmin tæki munu virka áfram

Hægt er að virkja kortið aftur í appinu.

1. Veldu kort

Á forsíðunni smellir þú á kortið sem á að frysta. Þá færðu yfirlit yfir kortið þitt ásamt möguleikanum að frysta kortið.

2. Frysta kort

Smellt er á hnappinn „Frysta kort“ og aðgerð staðfest.

3. Virkja kort

Ef enduropna á kort þarf að velja kort og smella á „Virkja kort“.